24. júní 2008 klukkan 09:31
Yndisleg Ísafjarðarferð að baki, við brunuðum af stað eftir vinnu á föstudaginn og vorum komin tíu um kvöldið. Laugardagurinn var afar rólegur við fórum bara í labbitúr og svona og eyddum öllum sunnudeginum í sólbað. Að venju sást það ekki á mér, nema smá bruni á vinstri öxl;)
Nú er líka útskriftir Örnu, Karenar og Esterar liðnar. Við fórum í flotta útskriftarveislu til Esterar á laugardeginum, Arna hélt svona pre útskriftar eitthvað fyrir okkur á fimmtudaginn og bauð okkur í grill. Namm það var gott.
Þarna einhvers staðar í millitíðinni löbbuðum við stelpurnar upp á Esjuna, ég fór upp á seinustu stöð en beið eftir stelpunum á meðan þær fóru upp á topp, því ég er svo ofsalega lofthrædd!
Annars vinn ég bara á virkum dögum, geri súperplön um að hætta borða nammi og hætta drekka kók og byrja hreyfa mig meira. Málið er bara að ég tími ómögulega að fara inn í vondu lyktina í World class eftir vinnu. Það er búið að vera svo yndislega gott veður! En við hjónaleysin höfum reynt að bæta það upp með hraustum göngumtúrum, fórum í rúma klukkutíma göngu í gær.
Í dag ætla ég í búðina eftir vinnu, svo í ræktina að hlaupa í svona hálftíma og í sund eftir það. Ég bara verð að fara í sund og gera smá tilraun til að vera brún;) Annars hefur brúnkukremið alltaf hjálpað mér.
Ég fór í smá tilvistarkreppu um daginn og fannst sumarið alveg búið, Berglind benti mér bara á það að það eru tveir mánuðir í að skólinn byrji, en hann byrjar 21. ágúst. Þannig að ég hef nógan tíma!
Af brúðkaupsplani er að frétta að boðskortin voru í prentaranum í gær og átti ég ekki svartan penna þannig að ég skrifa á þau í dag. Annars er ég líka búin að redda mér skarti, fæ svona hraun skartgripi lánaða frá mömmu minni. Annars skoðuðum við mamma tilögur að skrauti í veisluna á Ísafirði og ég keypti prufu af servíettum til að leyfa skreytingarmeistaranum að skoðaJ Mamma tekur nefnilega ekki í mál að ég hafi hvítar servíettur hehe.
En nú er hún Karen okkar flutt í baunalandið og kvöttum við hana þann 16.júni og verður sko mjög skrítið að hafa hana ekki hjá okkur lengur...:(

Hérna er hún og Drífa í brúðkaupinu fallega:)
Jæja þangað til næstJ