06. febrúar 2008 klukkan 16:19
Já maður er alltaf að hugsa hvernig maður eigi að spara... sérstaklega eftir að jólavísareikningurinn kom inn um lúguna. Ekki það að maður hafi ekki heimabanka og ekki vitað hvað maður var að gera. En þetta verður alltaf að raunveruleika þegar það kemur að skuldadögum

Svo er Jakob að fara að byrja að borga af námslánunum... það er sko dágóð summa skal ég segja ykkur.
Ég fór í gegnum þetta allt og fór að hugsa hvað mætti fara, fyrst á lista var náttúrulega stöð 2, það var náttúrulega bara tímabundið, keyptum bara tvo mánuði, næst fór ég að hugsa um að minnka internet hraðann, erum með ótakmarkað niðurhal og niðurhölum eiginlega aldrei. Þegar ég nefndi það við Jakob þá settist hann beint við tölvuna og fór að niðurhala eins og enginn væri morgundagurinn

Næsta hugmynd beindist að því að hætta að gefa í Unicef, það er nú kannski ekki rétt að hætta að gefa fátæku krökkunum svo ég geti átt flatskjá hehe.
En nýjasta hugmyndin er sú að flytja til keflavíkur, þar geturðu fengið 93 fm íbúð á 53.000.-. Þá gætum við leigt okkar íbúð á svona 150.000, stelpa sem er með mér í skóla er að leigja sína 60 fm íbúð á 110.000 þannig að 150.000 fyrir okkar er ekki svo fjarri sannleikanum. Inn í þessu verði á Keili er internet, hiti og rafmagn. Með íbúðinni fylgir þvottavél, þurrkari og uppþvottavél. Þarna væri ég sko að spara....

Vandinn er að Jakob er ekki alveg að kaupa þetta allt saman. Hann segir að við eigum bara að loka augunum, þrengja aðeins sultarólina og brátt verður þetta búið, hann er svo bjartsýnn þessi elska

Já þetta er eitthvað til að hugsa um. Ég var í prófi í fjármálum í morgun, og já ég var eiginlega ekki viss um neitt svar. Ég lærði alveg fyrir þetta próf en er búin að vera slöpp seinustu daga þannig að einbeitingin var ekki sú besta. Stressið náði hámarki í gær þegar Hildur sendi mér gamalt próf úr þessu og ég kunni ekki neitt í því. Djísú kræst:) Það var allt of oft að tveir möguleikar áttu við, og ég þoli ekki þegar það stendur "veldu það sem á best við...." best smest....
Jæja aftur að þjóðahagfræði:)