Ađalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lilja
  • Atvinna: Nemi í Háskóla Reykjavíkur
  • Hjúskaparstađa: Gift
  • Um mig: Ég er Lilja

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Ţarna gista ríka og frćga fólkiđ og svo viđ.....

Ég bloggađi um daginn....

28. febrúar 2008 klukkan 09:40
....en þar sem ég tók mér tvo tíma í það þá hvarf allt þegar ég ýtti á vista. Ég sem vanalega geri copy paste.... ekki í þetta skiptið.
Ég er búin að vera diuglega að fara í ræktina á morgnanna, mér finnst það betra en á kvöldin, á kvöldin er ég orðin þreytt og mér finnst það skera svo daginn að fara á kvöldin, eftir vinnu. Ég þarf nú ekki nema vakna aðeins fyrr, hálftíma þá næst þetta. Ég og jakob förum saman á morgnanna á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Hina daganna á ég að mæta klukkan átta og hann nennir ekki að vakna fyrr og mæta í vinnuna og bara hanga. Nema hann eigi einhverja uppsafnaða vinnu eftir. Reyndar á ég líka að mæta átta á miðvikudögum en hann á að mæta hálfníu þá og þá skiptir ekki öllu:)

Af kjólamátunin að frétta þá er ég eiginlega búin að velja kjól, hann er geðveikt flottur á mér:) Jei
Gestalistinn er enn ófullkomin, það vilja bara allir koma í brúðkaupið okkar what can you do.

Annars byrjaði ég að prjóna ungbarnapeysu í fyrradag, var í hagkaup með Dagnýu prjónakonu ásamt Karen og við tókum bara við áskorun að við gætum alveg prjónað. Svona svo til að gera þetta áhugavert þá ákvað ég að fara í keppni við Karen...verst að hún veit ekki af því ennþá:) Ég lærði sem sagt að gera brugðið í gær... stoppaði á því, skildi ekki bókina góðu sem amma gaf mér. Stelpurnar voru voðalega hrifnar af þessari bók, hún kennir bókstaflega allt sem tengist prjónaskap. við sjáum nú til hvernig þetta gengur, ég læt peysuna hverfa ef hún  er ljót:) hehe

Annars er þetta öruglega mjög leiðinlegt blogg.... um prjóna, brúðkaup og ræktina...neeee

Ég er búin að panta mér far vestur, nema ég ætla að afpanta það. Og panta aftur mig langar að fara fyrr. Ég ætlaði að fara ein, en jakob vill ekki leyfa mér að fara einni.... frekjan í honum:) Hann vill víst líka hitta fjölskylduna:) En ég fæ að vera lengur en hann:)

Annars gerðist svolítið fyndið um daginn á feisbúkk, ég fékk sendan póst frá einhverjum gaur og kemur samtalið hér....
g: en...... ertu ekki í sambandi?
ég: en hvað? hvað meinarðu??
g: finnst það ekki passa að vera í sambandi og að leita af sambandi...
ég: ég er ekkert að leita að sambandi hvað meinarðu?

Ég er voðalega hlessa á þessu öllu saman, hneykslast á þessu við stelpurnar í skólanum og allt en svo bendir Berglind mér á..... það stendur á síðunni minni looking for..... a relationship....
hahahahahahahahaah
Ég hafði ekki hugmynd um það:)
En aftur að rekstrargreingu....bleble

Hugurinn ber mig ađeins hálfa leiđ....

19. febrúar 2008 klukkan 19:58
First thing first; við vorum að kaupa okkur nýjan bíl. Jess sörí bob Svalur Við keyptum okkur glænýja Toyotu Corollu, ómæ gad. Við fáum hana á fimmtudaginn og get ég ekki beðið. Við sem erum búin að hugsa um þetta í pínu stund og okkar bíll búin að vera svolítið moody, fer bara stundum í gang Koss Við erum líka búin að vera skoða fullt fullt fullt af gömlum bílum, nema bara hvað að við ákváðum að kaupa bara nýjan, það munaði það fáránlega lítið á þeim, þannig að við keyptum okkur bara nýjan. Ótrúlega flottan bíl.

Annars gekk kjólamátunin vel á laugardaginn, ótrúlega gaman að vera í svona prinsessuleik í einn dag. Láta klæða mig í og úr kjól. Og ég kom mér sjálfri á óvart hversu mikil prinsessa ég ætla að vera Hissa Það var ofboðslega mikil hjálpa að hafa mömmu og Ester með, ég hefði ekki getað þetta án þeirra. En úff hvað þetta verður erfitt val. Ester tók fullt af myndum þannig að núna er næst á dagskrá að skoða allar myndirnar vel og vandlega:)

Ég er búin að vera með svo mikla útþrá seinustu daga, mig langar svo til útlanda....Hugurinn ber mig aðeins hálfa leið....dudududud lalalala
En miðað við peningaspandelsið á þessu heimili þá kemst ég ekki út fyrr en hver veit hvenær. Nema Brynja haldi áfram að lokka mann með svona guðdómlegum húsum á Flórída. Stelpur ég sé þetta alveg fyrir mér, við bara úti á sundlaugarbakka í sólbaði. Alveg eins og í OC Hlæjandi hahahahaha 

Næst á dagskrá er prófið í stjórnun sem ég get ekki sagt að ég hlakkai mikið til. Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég blogga núna, ekki nenni ég að læra :)
En á föstudaginn ætlum við Hildur á árshátíð, jeje við erum einu svölu stelpurnar í skólanum. Hinar stelpurnar ætla að vera partýpúbers.... BORING!

jæja bleble
Stjórnun kallar
árshátíð

Fullkomin sparnađarhugmynd...

06. febrúar 2008 klukkan 16:19
Já maður er alltaf að hugsa hvernig maður eigi að spara... sérstaklega eftir að jólavísareikningurinn kom inn um lúguna. Ekki það að maður hafi ekki heimabanka og ekki vitað hvað maður var að gera. En þetta verður alltaf að raunveruleika þegar það kemur að skuldadögum Saklaus Svo er Jakob að fara að byrja að borga af námslánunum... það er sko dágóð summa skal ég segja ykkur.

Ég fór í gegnum þetta allt og fór að hugsa hvað mætti fara, fyrst á lista var náttúrulega stöð 2, það var náttúrulega bara tímabundið, keyptum bara tvo mánuði, næst fór ég að hugsa um að minnka internet hraðann, erum með ótakmarkað niðurhal og niðurhölum eiginlega aldrei. Þegar ég nefndi það við Jakob þá settist hann beint við tölvuna og fór að niðurhala eins og enginn væri morgundagurinn Gráðugur    spara spara sparaNæsta hugmynd beindist að því að hætta að gefa í Unicef, það er nú kannski ekki rétt að hætta að gefa fátæku krökkunum svo ég geti átt flatskjá hehe.

En nýjasta hugmyndin er sú að flytja til keflavíkur, þar geturðu fengið 93 fm íbúð á 53.000.-. Þá gætum við leigt okkar íbúð á svona 150.000, stelpa sem er með mér í skóla er að leigja sína 60 fm íbúð á 110.000 þannig að 150.000 fyrir okkar er ekki svo fjarri sannleikanum. Inn í þessu verði á Keili er internet, hiti og rafmagn. Með íbúðinni fylgir þvottavél, þurrkari og uppþvottavél. Þarna væri ég sko að spara....Gráðugur
Vandinn er að Jakob er ekki alveg að kaupa þetta allt saman. Hann segir að við eigum bara að loka augunum, þrengja aðeins sultarólina og brátt verður þetta búið, hann er svo bjartsýnn þessi elska Glottandi

Já þetta er eitthvað til að hugsa um. Ég var í prófi í fjármálum í morgun, og já ég var eiginlega ekki viss um neitt svar. Ég lærði alveg fyrir þetta próf en er búin að vera slöpp seinustu daga þannig að einbeitingin var ekki sú besta. Stressið náði hámarki í gær þegar Hildur sendi mér gamalt próf úr þessu og ég kunni ekki neitt í því. Djísú kræst:)  Það var allt of oft að tveir möguleikar áttu við, og ég þoli ekki þegar það stendur  "veldu það sem á best við...." best smest....

Jæja aftur að þjóðahagfræði:)

Gleđilegan sprengidag

05. febrúar 2008 klukkan 13:31
Svo var líka maskadagur í gær, ef maður væri krakki í dag hvað myndi maður vera?

Mig langar ofsalega í ný föt núna og ég segi satt að mig vantar föt, hvað sem Jakob segir það er rógburður. En það er ekki hægt að kaupa föt á þessum tíma árs. Í Janúar byrjuðu útsölurnar og þá er ekki hægt að kaupa neitt, það er allavega erfitt. Samt keypti ég mér eina peysu og einn bol reyndar þegar ég hugsa útí það Hissa
Og svo núna eru fermingar, mér finnst það ekki gaman þegar ég sé eitthvað fallegt og lekkert svo ég tali gamaldags, allt fyrir þig Berglind! Já þegar ég sé eitthvað fallegt og lít upp þá stendur ferming 2008. Ekki vil ég líta út eins og fermingarbarn á djamminu eða í skólanum!

Það sem er að frétta af okkur skötuhjúunum að við erum að reyna.... erum að skoða bíl og stefnum að vera búin að kaupa bíl fyrir vikulok. Það er bara of mikið sem þarf að gera fyrir okkar bíl þannig að það er komin tími á nýjan.

Af brúðkaupsundirbúningi er lítið að frétta, við eigum enn eftir að panta ljósmyndara. Getum ekki ákveðið okkur.... þetta er allt saman mjög erfitt. Viðræður standa enn um stærð gestalista. En ég er að fara í brúðarkjólamátun á laugardaginn 16.febrúar þannig að við skulum nú vona að einhver ákvörðun verður tekin þar. Mamma og Ester ætla með mér í mátun, mamma hætti við að fara á Þorrablót til að komast með mér, hún var svo spennt. Ester bara verður að koma með, hún fær engu um það ráðið Svalur

Jæja próf á morgun, þarf að halda áfram að læra;) bleble

Já já já já ok.....

01. febrúar 2008 klukkan 23:07

Ég er mikið búin að vera hugsa, hugsa um hvað ég eigi að blogga. Mér finnst ég ekkert hafa að segja, sumir segja að þetta sé janúar að kenna. Ég er eiginlega ekki sammála því ég er ekkert andlaus út af janúar. Ég hef alveg fullt að segja svona úti í veruleikanum. En ekki á blogginu eins og  þeir komumst að sem lásu bloggið á Bhekled blogginu um daginn, þá bloggaði ég um skyr!

Hildur segir að ég eigi að blogga um að ég sé búin, ég er fyrir löngu búin í prófum, búin í jólafríi, búin að kaupa mér nýjan sófa og nýtt sjónvarp, búin að fara í fern afmæli. Samt eiginlega bara þrenn, því tvær héldu saman Glottandi

Ég er líka byrjuð í skólanum, byrjuð að taka með mér nesti á nær hverjum degi, byrjuð að læra hellings upp í skóla, og byrjuð í ræktinni Svalur

Annars vildi ég bara skipta um færslu, orðin fyrir löngu leið á færslunni fyrir neðan og komin tími til að ég bloggaði fyrir löngu. Ég byrjaði oft en kom aldrei nógu skemmtilegu út úr mér!

Annars er lítið á dagskránni á næstunni, á næstu helgi er útskriftin hennar Brynju:) Jei ég hlakka til þess. En á undan fæ ég að spreyta mig í fjármálaprófi sem verður áhugavert vægt til orða tekið. Svo liggjum við stelpurnar sveittar að reyna finna helgi í bústað fyrir árshátíð Bhekled, einhverja helgi sem allar komast:) Svona ykkur að segja finnst mér ég komast allar helgar nema þessa sem ég kemst ekki hahahahahaGlottandi

hmmm jejeje Þetta er orðið gott í bili;)